
Ítalía
Feneyjar
Drottning Adríahafsins — borg síkja, kaffihúsa og gondóla
Land
Ítalía
Svæði
Norðaustur-Ítalía
Jóga
Kundalini Jóga, Jóga Nidra
Um áfangastaðinn
Feneyjar
Borgin Feneyjar er í allri sinni fegurð oft nefnd drottning Adríahafsins og mikil upplifun að sigla um kanala og virða fyrir sér stórhýsi og glæsihallir liðinna tíma. Það er þess virði að kíkja í kaffi á eitt af aldagömlu kaffihúsunum við Markúsartorg og dást að stórfenglegum byggingum á borð við Markúsarkirkju, Hertogahöllina og Klukkuturninn Il Campanile.
Borg síkja, kaffihúsa og gondóla
Feneyjar eru reistar á mörgum hólmum og helsti ferðamáti íbúa er enn sem fyrr að sigla. Margar fallegar brýr tengja hólmana saman og því þægilegt að fara ferða sinna fótgangandi en líka skemmtilegt að sigla milli staða á gondóla, að degi eða kvöldi, jafnvel undir angurværum söng ræðarans. Þekktustu kaffihúsin eru við Markúsartorgið — þar má sötra sitt ítalska kaffi og hugsa til Casanova, Byron, Goethe og Proust sem sóttu þennan stað.
Rialto brúin og Canal Grande
Feneyjar eru reistar á 118 smáeyjum og á milli þeirra eru um 200 síki með 435 brýr. Þekktust brúanna er án efa Rialto brúin sem er elst þriggja brúa yfir Canal Grande — reist 1591, hönnuð af Antonio da Ponte, hvílandi á 6000 eikarbolum. Sigling um Canal Grande gefur tækifæri til að berja augum ótal villur og hallir. Að vera í Feneyjum er einstakt — eins og að vera lentur í ævintýri í þessari einstöku borg þar sem vatn flýtur alltum kring.
Praktískar upplýsingar
Besti tími
Vor og haust (mars–maí, september–október)
Jóga í boði
Kundalini Jóga, Jóga Nidra
Uppgötvaðu
Hápunktar
Markúsartorgið
Hjarta Feneyja með Markúsarkirkjuna, Hertogahöllina og Il Campanile klukkuturninn.
Gondóla og vaporetto
Ferðast um borgina á hefðbundnum gondóla eða með opinberri vatnsstrætó.
Rialto brúin
Ein þekktasta brú í heimi yfir Canal Grande með sölubúðir og stórfenglegt útsýni.
Murano og Burano
Nálægar eyjar — Murano fræg fyrir glermennskuna, Burano fyrir litríkar húsagaflar.


