
Ítalía
Gardavatn
Stærsta vatn Ítalíu — saga, fegurð og ítalsk lífsdýrð
Land
Ítalía
Svæði
Norður-Ítalía
Jóga
Kundalini Jóga, Jóga Nidra, Stólajóga
Um áfangastaðinn
Gardavatn
Saló
Saló er með fjölmennari bæjum við Gardavatn og á rætur sínar til tíma Rómverja og þá þegar orðin borg en árið 1377 gerð að miðstöð vesturstrandar Gardavatns undir yfirráðum Visconti ættarinnar. Bærinn hefur löngum verið með efnaðri bæjarfélögum við vatnið og hið eina við Garda sem státar af dómkirku. Kirkjan heitir Santa Maria Annunziata, gotnesk í stíl; bygging hófst 1453 en fékk andlitslyftingu með tímanum — hvíta framhlið í endurreisnarstíl. Dómkirkjan er í gamla bæjarhlutanum og þar við torgið er hægt að gæða sér á ís sem sagður er sá rjómakenndasti við vatnið — ísbúðin heitir La Casa Del Dolce.
Göngugata og afslappað mannlíf
Saló státar af lengstu göngugötu við Gardavatn; gatan var byggð fyrir rúmum 100 árum, eftir jarðskjálftа sem skuku jörð árið 1901. Hún er í dag um þriggja kílómetra löng með kýprusviðartrjám, svo til alveg án bílaumferðar. Þar er gaman að spássera og hvíla sig á bekkjum og kaffihúsum, fylgjast með mannlífi og litlum fiskibátum sem halda til veiða í morgunsárið.
Gasparo da Saló — fyrsti fiðlusmiðurinn
Við göngugötuna í miðjum bæ er stytta sem sýnir einn af fyrstu fiðlusmiðum mannkyns — Gasparo da Saló, fæddist í Saló 1542. Helsta verslunargatan er Via San Carlo sem liggur frá dómkirkjunni að torginu Piazza Zanelli. Frá vatninu er stutt leið í Verona, borg Rómeós og Júlíu, og til vesturs Mílanó — höfuðborg mótans.
Praktískar upplýsingar
Besti tími
Vor og haust (apríl–júní, september–október)
Jóga í boði
Kundalini Jóga, Jóga Nidra, Stólajóga
Ferðir hingað
Uppgötvaðu
Hápunktar
Saló
Þykkjulegur bær á vesturströnd með gotneskri dómkirkju, lengstu göngugötu við vatnið og bestu ísur.
Sirmione
Fallegt miðaldabæjarlag á skaga með kastellið Scaligero, þröngar götur og hlý kaffihús.
Verona
Borg Rómeós og Júlíu — rómverskt hringleikahús, hús Júlíu og eldforn götur við Adige-ána.
Siglingur á vatninu
Ferja milli bæja eða einkaferð til Isola del Garda — litlir eyjur í miðju vatnsins.


