Tyrkland – Fethiye

Tyrkland

Tyrkland – Fethiye

Framandi heimur á mörkum Evrópu og Asíu — saga, hitatíð og fagurblár sjór

Land

Tyrkland

Svæði

Suðvestur-Tyrkland

Jóga

Kundalini Jóga, Jóga Nidra

Um áfangastaðinn

Tyrkland – Fethiye

Tyrkland er magnað land með eldgamla menningu og sögu þar sem vagga evrópskrar menningar á rætur. Landið liggur á mótum Evrópu og Asíu með exotískt og heillandi andrúmsloft. Víða má sjá merki um horfna menningu í fornum rústum í bland við nútímalíf — bænakall úr nærliggjandi mosku, konur með blæjur hlið við hlið við konur klæddar að vestrænum hætti.

Fethiye — bær með iðandi mannlíf

Strandbærinn Fethiye telur um 80.000 íbúa og er á suðvesturströnd landsins í fögru umhverfi við Fethiyeflóa. Borgin var nefnd Telmessos á fimmtu öld fyrir Krist og hafa áhrif frá Hellenum, Persum, Býsanska veldinu og veldi Ottómana litað líf íbúa. Bærinn státar af Çalış strönd sem teygir sig fjóra kílómetra — þar er ljúft að sóla sig, fara í göngutúr og njóta undursamlegs sólarlags.

Bláa lónið, Kayaköy og Dalyan

Bláa lónið (Ölüdeniz) er réttnefni — vatnið er fagurblátt og lónið liggur í miklu skjóli. Gönguleið liggur þaðan til Kayaköy — sérstaks bæjar sem var yfirgefinn árið 1923 þegar Grikkir bjuggu þar og þurftu að flytja til síns heimalands. Dalyan er nágrannabær, fyrrum fiskimannabær, þekktur fyrir fágætar skjaldbakur og fornar steingrafir höggnar í klettabergið.

Praktískar upplýsingar

Besti tími

Vor og haust (apríl–júní, september–nóvember)

Jóga í boði

Kundalini Jóga, Jóga Nidra

Hafa samband

Hefur þú áhuga á ferð til Tyrkland – Fethiye?

Spyrjum okkur

Uppgötvaðu

Hápunktar

Bláa lónið

Ölüdeniz — eitt þekktasta og fagurasta strandlínu í heiminum með turquoise lagún.

Kayaköy

Yfirgefinn grísk-tyrknesk bær — draumalegur staður þar sem tíminn virðist standa.

Fiðrildadalur

Dalur nefndur eftir ótal fiðrildum — falleg villta náttúra með foss og göngustígar.

Eyjasiglingar

Ótal bátar við höfnina bjóða dagsferðir að eyjum í Fethiye-flóanum.

Tyrkland – Fethiye 1
Tyrkland – Fethiye 2
Tyrkland – Fethiye 3