
Ítalía
Verona
Borg Rómeós og Júlíu — rómanskar minjar og eilíf fegurð
Land
Ítalía
Svæði
Norður-Ítalía
Jóga
Kundalini Jóga, Jóga Nidra
Um áfangastaðinn
Verona
Veróna er ásamt Róm, Flórens og Feneyjum á meðal vinsælustu borga Ítalíu — sögð ein elsta og fegursta borg landsins. Hún er staðsett milli Veneto sléttunnar, Gardavatnsins og Dólómítafjallanna, miðja vegu milli Mílanó og Feneyja. Í borginni er að finna magnaðar minjar frá tímum Rómarveldis og ber hæst hringleikahúsið Arena.
Borg Rómeós og Júlíu
Shakespeare sviðsetti hér nokkur verka sinna — borgin er svo rómantísk að hann valdi Verona sem sögusvið einnar frægustu ástarsögu allra tíma. Sé gengið eftir aðalgötunni Via Mazzini má finna hús Júlíu, "Casa di Giulietta", örfáum metrum síðar. Heimili Capuleti fjölskyldunnar er frá 13. öld og þar eru svalirnar hvar undir Rómeó stóð og flutti sinni heittelskuðu sonnettur. Hægt er að ganga inn í lítinn bakgarð, skoða styttu af Júlíu og mæna upp á svalirnar.
Torgin og Arena
Helstu torg Verona heita Piazza delle Erbe og Piazza Bra. Hringleikahúsið — Arena — hefur í boði tónleika yfir sumartímann og var byggt fyrir um 2000 árum þar sem skylmingaþrælar háðu bardaga sín á milli. Í gegnum borgina rennur áin Adige sem gefur henni aukna fegurð og fallegt er að ganga með bökkum hennar. Göturnar eru tandurhreinar og hátískuverslanirnar standa ein af annarri.
Praktískar upplýsingar
Besti tími
Vor og haust (apríl–júní, september–október)
Jóga í boði
Kundalini Jóga, Jóga Nidra
Ferðir hingað
Uppgötvaðu
Hápunktar
Arena di Verona
Rómverskt hringleikahús frá 1. öld — enn notað fyrir tónleika og óperur á sumrin.
Casa di Giulietta
Hús Júlíu með hinum fræga svala þar sem Rómeo söng til unnustu sinnar.
Piazza delle Erbe
Upprunalegt rómverskt forum — nú torg með markaðsbúðir, kaffihús og fallegar byggingar.
Ánni Adige
Falleg gönguleið meðfram ánni með eldfornari brýr og útsýni yfir borgina.


